Frétt

18. 08 2014

Námskeið í notkun EndNote desktop fyrir starfsfólk LSH.

Þriðjudag 26. ágúst, klukkan 13-15,  verður haldið námskeið í notkun EndNote desktop í tölvuveri í kjallara Heilbrigðisvísindabókasafnsins í Eirbergi. 

Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku og skal senda póst til umsjónarmanns námskeiðsins, Guðrúnar Kjartansdóttur bókasafns- og upplýsingafræðings, í netfangið gudrunkj@lsh.is.

Pláss er fyrir 10 manns á námskeiðinu og verða haldin fleiri námskeið ef fleiri sækja um en komast að.

Athugið að þetta námskeið er um nýtingu desktop útgáfu forritsins sem spítalinn keypti aðgang að fyrir alla starfsmenn síðastliðið vor.

 

 

Til baka
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania