Frétt

07. 01 2011

Íslensk bók í fullri lengd í Hirslunni

Bókin Svæfingar á Íslandi í 150 ár eftir Jón Sigurðsson svæfingalækni er fyrsta bókin sem birtist í fullri lengd í Hirslunni.

Hirslan er rafrænt geymslusafn Landspítala. Þar eru greinar úr Læknablaðinu og öðrum íslenskum ritum á heilbrigðissviði, auk útgefins efnis eftir starfsmenn Landspítalans.

Að senda grein til birtingar í Hirslunni er einföld leið til að opna aðgengi að henni fyrir allan heiminn. Slík verk fá að jafnaði mun meiri lestur en þau sem eingöngu eru gefin út í áskriftarritum.

Sjá nánar á

 

Til baka
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania