Myndveita LSH

Ljósmyndarar mynda fyrir ársskýrslur, vísindahefti, bæklinga, heimasíður og einnig hópmyndir, atburði, fundi og annað daglegt starf á deildum spítalans.

Myndirnar eru varðveittar í Myndasafni Landspítalans og hafa starfsmenn spítalans aðgang að henni á innri vef spítalans og hér. Hægt er að leita eftir efnisorðum, dagsetningu og fleira. Myndirnar í myndveitunni eru í lágri upplausn, til að auðveldara sé að skoða þær á vef. Til að fá myndir í fullri upplausn þarf að hafa samband við ljósmyndara til að panta myndir. Þá er send beiðni á bokasafn@landspitali.is. Þar þarf að koma fram:

  • LSH númer myndanna
  • Viðfangsnúmer deildar
  • Upplýsingar um væntanlega notkun

Starfsfólki LSH er frjálst að nota myndir úr myndveitunni innan LSH, til dæmis fyrir fyrirlestra, bæklinga, veggspjöld, kennslu og vefsíður. Miðað er við gjaldskrá Myndstefs fyrir notkun utan LSH.

  • Klíníska FotoWeb
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania