Frétt
Clinical Key og Clinical Key Student opið fram á sumar
Elsevier hefur opnað fyrir endurgjaldslausan aðgang að Clinical Key Medicine gagnaveitunni fyrir starfsfólk Landspítala og Clinical Key Student fyrir nema í læknisfræði. Aðgangurinn verður opinn út júní.
Clinical Key
sem er byggt upp til að styðja við klíníska ákvarðanatöku og símenntun inniheldur milljónir tímaritsgreina, yfir 1000 bókatitla, fjölda klínískra leiðbeininga o.fl.
Clinical Key er aðgengilegt hér www.clinicalkey.com
Stutt myndband um virkni Clinical Key
Utan Landspítala er einfalt að komast í Clinical Key í gegnum Open Athens fjaraðgangskerfi bókasafnsins. Til að sækja um Open Athens aðgang þarf að fylla út eyðublað hér
Clinical Key Student
er byggt upp sem gagnvirkt námsumhverfi fyrir læknastúdenta þar sem aðgangur er að hundruðum virtra kennslubóka, myndböndum og öðrum námstólum.
Clinical Key Student er aðgengilegt hér www.clinicalkey.com/student
Quick start guides og fleiri leiðbeiningar fyrir námsmenn og kennara eru hér.
Til að komast í Clinical Key Student þarf að nota Open Athens fjaraðgangskerfi bókasafnsins. Til að sækja um Open Athens aðgang þarf að fylla út eyðublað hér
Til baka