Frétt

11. 09 2003

Opið hús í Eirbergi


Bókasafns- og upplýsingasvið verður með opið hús í Eirbergi kl. 15:00 til 16:00 föstudaginn 12. september 2003. Miklar skipulagsbreytingar hafa verið á þessu sviði undanfarið og auk þess umtalsverðar lagfæringar og breytingar á húsnæði. Í tilefni þess að sameiningu allra starfsþátta sviðsins undir einu þaki er lokið og opnuð hefur verið ný afgreiðsla er boðið til opna hússins í aðalsafninu í Eirbergi.
Á þessum tímamótum er líka opnaður nýr og endurbættur vefur bókasafns- og upplýsingasviðs á upplýsingavef LSH.
Þess er vænst að sem flestir sjái sér fært að kynnast fjölbreyttri starfsemi bókasafns- og upplýsingasviðs með því að notfæra sér opna húsið. Allir eru velkomnir.

Til baka

Myndir með frétt

    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania