Frétt

19. 01 2006

Greiningarstöð gerir þjónustusamning við bókasafn LSH


Bókasafn LSH (BUSV) og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hafa undirritað þjónustusamning um bókasafns- og upplýsingaþjónustu fyrir starfsmenn
Greiningarstöðvarinnar. Með þessum samningi verður aðgangur starfsmanna hennar að þjónustu og gögnum Bókasafns LSH sá sami og starfsmanna LSH. Með
undirritun þessa samnings eru þær stofnanir sem gert hafa þjónustusamning við BUSV orðnar átta talsins.
Þær eru, auk lækna- og hjúkrunarfræðideilda Háskóla Íslands, Landlæknisembættið, Krabbameinsfélag Íslands, Hjartavernd, Reykjalundur og St. Jósefsspítali.

Til baka

Myndir með frétt

    Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Advania